Hestur í Fóstur

Þessi námskeið eru upplögð fyrir börn sem hafa áhuga á hestum en hafa ekki hest né aðstöðu til að fara á hestbak. Að taka hest í fóstur getur verið góður undirbúningur ef maður hefur áhuga á að skella sér í hestamennskuna.

 

Á námskeiðinu fá börnin úthlutaða hesta sem þau sjá um eins og sinn eigin. Börnin læra að hirða um hestana og fara í útreiðartúra. Þau munu læra að kemba, leggja á og ríða út auk þess sem þau taka þátt í almennri umhirðu hestanna, t.d. setja sag í stíur, hreinsa gerði og gefa.

 

Þetta er liður í því að kynna fyrir börnunum hvað felst í því að eiga hest. Þátttakendur fá góða leiðsögn og þeim verður leiðbeint af þaulreyndum starfsmönnum okkar, fá góða innsýn inn í heim hestamennskunnar og öðlast mikilvægan skilning á því að hestamennska er ekki bara fólgin í því að hoppa í hnakkinn og ríða út.

 

Við höfum nú opnað fyrir skráningar námskeiða sem hefjast þann 1. & 2. Febrúar 2025. 
Námskeiðin eru 12 skipti alls og síðasti tíminn verður þann 11. maí. (Við verðum í fríi í vetrar-og páskafríi grunnskólanna).

 

Ef þið eruð ekki viss á hvaða námskeið barnið ykkar ætti að vera í þá er gott að hafa samband við okkur og við finnum út úr því í sameiningu.

Vinsamlegast athugið að við færum á milli hópa ef til þess kemur, bæði ef nemendur eru of hræddir og þurfa að fara í rólegri hóp eins ef þeir eru óhræddir og þurfa að vera í reynslumeiri hóp. Við miðum við skólaár og eru stubbanámskeið fyrir þau sem eru í 1. og 2. bekk. Byrjendanámskeið er fyrir þau sem eru í 3. bekk.

 

Nánari upplýsingar í síma 555-7000 eða á netfangið margret@ishestar.is

Dagskrá fyrir vorönn 2025

Stubbar

Sunnudagar kl: 9:00

7-8 ára, fædd 2013-2014

Skemmtilegt hestanámskeið fyrir þau yngstu! Börnin læra að hirða um hestana og læra að umgangast þá af öryggi ásamt því að farið verður í útreiðatúra um svæðið. Hentar fyrir alveg óvana og meira vana.

Námskeiðið er í 60 mín. á kr. 38.000,-

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ

Byrjendur

Sunnudagar kl. 10:00

9-11 ára, fædd 2013-2015

Byrjenda og rólegheitanámskeið eru upplögð fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni, eru að byrja aftur eftir hlé og líka fyrir þau sem kjósa frekar rólegheit og hafa ekki gaman að því að ríða hratt.

Námskeiðið er í 120 mín. á kr. 65.000,-

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ

Framhald

Sunnudaga kl 12:30

9-16 ára, fædd 2009-2016

Fyrir nemendur sem hafa lokið að minnsta kosti einu reiðnámskeiði. Á þessu námskeiði byrjum við rólega og tökum okkur tíma í upprifjun en aukum svo taktinn jafnt og þétt. Nemendur þurfa að vera óhræddir við hesta og tilbúnir að ríða hraðar en fet.

Námskeiðið er í 120 mín. á kr. 65.000,-

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ

Reiðklúbbur

Sunnudaga kl 15:00

12-16 ára, fædd 2009-2013

Námskeið fyrir þá sem hafa mikla reynslu af hestamennsku og eru öruggir og óhræddir í umgengni við hross. Nemendur þurfa að vera sjálfbjarga með að leggja á sjálfir þ.e. beisla, festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og vanir að ríða allar gangtegundir nema skeið. Farið verður í verklega kennslu ásamt því að fara í lengri og styttri hópreiðar um svæðið. Þeir nemendur sem

hafa næga reynslu að mati kennara munu fá tækifæri til að ríða út einir eða með öðrum nemendum án leiðbeinanda. Áfram eru dagleg verk í hesthúsi unnin af nemendum sem liður í því að kynna fyrir þeim allt það sem fylgir því að eiga sinn eigin hest.

 

Námskeiðið er í 120 mín. á kr. 65.000,-

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ

Stjörnuklúbbur

Laugardagar kl 16:00

Námskeið fyrir þá sem hafa mjög mikla reynslu af hestamennsku og hafa lokið í Reiðklúbb hjá Íshestum. Nemendur þurfa að vera öruggir og óhræddir í umgengni við hesta, vera sjálfbjarga með að leggja á sjálfir þ.e. beisla, festa múl og leggja hnakk á hestinn sinn og vanir að ríða allar gangtegundir nema skeið. Nemendur fara í útreiðartúra í öllum veðrum og vindum og fá að prófa mismunandi hesta til að auka reynslu til útreiða.

Nemendur fá tækifæri til að ríða út í hóp með öðrum nemendum án leiðbeinanda og upplifa þannig frelsið og sjálfstæðið sem fylgir hestamennskunni. Áfram eru dagleg verk í hesthúsi unnin, sem er liður í því að kynna fyrir þeim allt það sem fylgir því að eiga sinn eigin hest.

Athugið að þetta er breyttur stjörnuklúbbur frá fyrri árum. – Þetta námskeið verður kennt einu sinni í viku á laugardögum, að öðru leiti er klúbburinn eins.

Námskeiðið er í 120 mín. á kr. 65.000,-

SMELLTU HÉR TIL AÐ SKRÁ