Reiðskóli Íshesta og Sörla býður upp á skemmtileg reiðnámskeið í sumar.
Okkar markmið er að börnin kynnist íslenska hestinum, læri undirstöðuatriðin í reiðmennsku og hafi gaman af.
Á námskeiðunum hjá okkur er aðeins einn nemandi um hvern hest. Við leggjum áherslu á mikið samneyti við hestana og erum dugleg að fara í reiðtúra þegar veður leyfir. Í reiðskólanum okkar er engin bókleg kennsla en verkleg kennsla fer fram í gegnum leik og starf með hestunum. Nemendur fá viðurkenningarskjal með mynd af sér og hestinum sínum í lok námskeiðs. Foreldrum er boðið að koma á sýningu síðasta kennsludaginn síðustu 40 mínúturnar. Nánar auglýst á hverju námskeiði fyrir sig.
Námskeiðin eru 3 klukkustundir í senn í eina viku eða 5 daga, nema þegar 17. júní ber uppá þá er kennt í 4 daga. Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri, í góðum skóm og með hollt nesti.
Skráning fer fram í gegnum Sportabler hér Fyrirspurnir sendist á tölvupóstfangið á reidskoli@ishestar.is
Sumardagskrá 2024
7-12 ára
Reiðskóli 1 10.-14. júní 09:00-12:00 29.900 kr. Full bókað
Reiðskóli 2 18.-21. júní 09:00-12:00 23.920 kr. Full bókað
Reiðskóli 3 24. -28. júní 09:00-12:00 29.900 kr.Full bókað
Reiðskóli 4 24.-28. júní 13:00-16:00 29.900 kr.Full bókað
Reiðskóli 5 1.-5. júlí 09:00-12:00 29.900 kr. Full bókað
Reiðskóli 6 1.-5. júlí 13:00-16:00 29.900 kr. Full bókað
Athugið að skilyrði er að börn hafi klárað fyrsta bekk í grunnskóla.
Hestafjör – 2ja vikna námskeið fyrir 11-16 ára
Hestafjör er fyrir börn og unglinga sem hafa lokið öllum hefðbundnum námskeiðum og eru tilbúin í meira krefjandi reiðmennsku.
Hestafjör 10. júní-21. júní 13:00-16:00 64.900 kr.*
Athugið að ekki er kennt 17. júní. Námskeiðið er í 9 daga.
*Einungis starfræktur ef næg þátttaka fæst sem er 10 skráningar.
Innifalið: Þægir og góðir reiðhestar, öryggishjálmur og reiðtygi.