Þetta námskeið er sérsniðið fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku, byrja aftur eftir langan tíma eða eru hræddir við hesta. Markmið námskeiðsins er að kynnast hestinum og læra undirstöðuatriði í umhirðu hestsins, ásamt að geta umgengist hesta af öryggi og óttaleysi.
Farið er yfir undirstöðuatriði eins og feldhirðu, gangtegundir, jafnvægi knapans og að nemendur nái góðu og traustu sambandi við sinn hest. Gerðar verða stjórnunaræfingar í gerði ásamt því að fara í reiðtúra um svæðið í kringum Íshesta.
- Kennt er einu sinni í viku í 120 mín í senn og stendur námskeiðið yfir í 2 vikur
- Námskeið hefst kl. 16:00 á mánudögum og lýkur kl. 18:00
- Nemendum er velkomið að koma fyrr og fara í viðeigandi klæðnað þ.e. kuldagalla, regngalla og stígvél þegar við á
Athugið að lágmarksþátttaka er 3 á hverju námskeiði.